Þegar írska bankakerfið hrundi fyrir þremur árum gekk sá brandari víða að eini munurinn á Íslandi og Írlandi væri einn bókstafur og sex mánuðir. Nú hefur Írlandi aftur verið stillt upp við hlið Íslands til samanburðar, en í þetta sinn eru líkindin jákvæð, að sögn Reuters. Meira
Forseti Bandaríkjanna, Barack Obama, lýsti yfir stuðningi við nýjan forsætisráðherra Grikklands, Lukas Papademos, í síma í dag og þakkaði honum fyrir að taka að sér slíkt ábyrgðarstarf á tvísýnum tímum. Meira
Christine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sagði í dag að nauðsynlegt væri að pólitískri óvissu yrði eytt í Grikklandi. Það væri ávallt skilyrði þegar gengið værið til samninga eða gengið frá greiðslum. Meira
Jón Daníelsson, hagfræðingur við London School of Economics, segir bandaríska hagfræðinginn Paul Krugman draga rangar ályktanir af stöðu mála hér á landi og misskilja viðbrögð íslenskra stjórnvalda við bankahruninu haustið 2008. Meira
Unnið er nú hröðum höndum að því innan Evrópusambandsins að koma saman nýjum björgunarpakka fyrir Grikkland svo hægt sé að tryggja landinu nauðsynlegar lánafyrirgreiðslur í næsta mánuði og koma þannig í veg fyrir að það lendi í greiðsluþroti. Meira
Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sem fjallað hefur um íslensk efnahagsmál undafarna daga, segist reikna með því að framkvæmdastjórn sjóðsins fjalli um næstu endurskoðun á efnahagsáætlun Íslands í byrjun júní. Meira
„Ef okkur tekst að verjast því að mat ríkisins er fellt er það mikill varnarsigur í þessari stöðu,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra um þá ákvörðun matsfyrirtækisins Moody’s að staðfesta óbreytt lánshæfismat íslenska ríkisins. Meira
Úrslitin í kosningunum um Icesave-lögin voru afgerandi og vildi meirihluti kjósenda í öllum kjördæmum fella lögin úr gildi. Hlutfall þeirra sem sögðu „nei“ var þó mun hærra á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu. Meira
Forseti Portúgals bað Evrópusambandið (ESB) og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (AGS) að sýna landi sínu miskunn. ESB og AGS settu ströng skilyrði fyrir lánafyrirgreiðslu upp á 80 milljarða evra (13.016 milljarða ÍKR). Stutt er til kosninga í Portúgal. Meira
Ingibjör Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, segir í minnisblaði sem hún sendi utanríkismálanefnd Alþingis í desember 2009, að í nær allan nóvembermánuð 2008 hafi Ísland háð eina hörðustu millríkjadeilu í sögu sinni. Meira
Fjármálaráðherra Írlands kynnti í dag fjárlög næsta árs, en í þeim er gert ráð fyrir 6 milljarða evra viðsnúningi, sem ná á fram með skattahækkunum og minnkuðum útgjöldum. Þetta eru skilyrði þess að neyðarlán frá Evrópusambandinu og Alþjóða gjaldeyrissjóðnum fáist veitt. Meira
Neyðarlán Evrópusambandsins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins handa írskum stjórnvöldum verður þungur baggi á herðum skattgreiðenda. Aðhaldsaðgerðir stjórnvalda í Dublin er sögð marka endalok velferðakerfisins. Meira
Írski seðlabankastjórinn sagði í morgun að „mjög líklegt“ væri að Írland myndi óska eftir láni frá ESB og AGS upp á tugi milljarða evra. Meira
Greiningardeild Arion banka túlkar yfirlýsingu Más Guðmundssonar, seðlabankastjóra, sem hann gaf í morgun um gjaldeyrishöftin, þannig að Seðlabankinn talitungum tveim eftir því hvort hann vill tala við fjármálamarkaðinn, en þá sé lögð áhersla á hægð og hófsemi, eða hvort talað er til stjórnmálamanna en þá sé reynt að þrýsta á afnám hafta og markaðsfrelsi. Meira
Komi allur gjaldeyrinn í höfn eftir afgreiðslu Alþjóða gjaldeyrissjóðsins á láni til Íslands og lánum frá norrænu ríkjunum og Póllandi styrkist gjaldeyrisforði Seðlabankans um 620 milljónir evra, 96 milljarða króna, og verður forðinn þá 2,3 milljarðar evra að frádregnum skammtímaskuldbindingum. Seðlabankinn telur það nægjanlegan forða til að hægt sé að hefja afnám gjaldeyrishafta . Meira
Landsframleiðsla á Íslandi dróst mun meira saman á öðrum ársfjórðungi en hjá öðrum þeim Evrópulöndum sem verst hafa orðið úti í kreppunni, samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands og Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins. Meira
Grikkir hafa nú uppfyllt öll skilyrði til að fá aðra útborgun af 110 milljarða evra lánapakka frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, eftir að hafa náð miklum árangri í endurgerð fjárhagsáætlunar landsins. Þetta segir í tilkynningu frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Meira
Grísk yfirvöld tilkynntu í dag að tekist hefði að draga úr fjárlagahallanum í landinu um tæp 40% miðað við stöðuna á síðasta ári, að sögn fjármálaráðherra landsins. Á fyrstu 7 mánuðum ársins 2010 var hallinn um 12.097 milljarðar evra, en á sama tímabili í fyrra var hann 20.050 milljarðar evra. Meira
Grískir hafnarstarfsmenn hafa lagt niður störf í Piraeus, sem er stærsta hafnarborg landsins. Þetta hefur mikil áhrif á ferðaáætlanir mörg þúsund ferðamanna sem komast ekki leiðar sinnar með ferjum. Meira
George Papandreou, forsætisráðherra Grikklands, sagði í dag að áætlun um aðstoð frá ESB og AGS sé „ekki ánægjuleg“ en lífsnauðsynleg. Þær raddir gerast nú æ háværari í Þýskalandi sem krefjast þess að stjórnvöld í Aþenu íhugi að segja sig úr evrusvæðinu. Meira